fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Dularfulla peningamálið – Fundu 140 milljónir grafnar á landareigninni

Pressan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 03:12

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Skjáskot/Google Earth.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verktaki var nýlega fenginn til að fjarlægja nokkur tré á landareign bónda eins á Mið-Jótlandi í Danmörku. En óhætt er að segja að verktakinn og bóndinn, hafi ekki trúað eigin augum, þegar peningar í miklu magni byrjuðu að velta upp úr jörðinni við uppgröftinn.

Skive Folkeblad segir að um margar milljónir danskra króna sé að ræða og aðrir danskir fjölmiðlar hafa nefnt töluna sjö milljónir en það svarar til 140 milljóna íslenskra króna.

Málið er allt hið dularfyllsta og lögreglan er að rannsaka það. Talsmaður hennar ræddi við TV MIDTVEST og staðfesti að peningar hefðu fundist við uppgröft á landareigninni og sagði að um „töluverða upphæð“ sé að ræða. Hann vildi ekki skýra frá upphæðinni vegna rannsóknarhagsmuna.

Aðspurður sagðist hann ekki vilja segja neitt um samsetningu seðlanna því ef einhver gefi sig fram og segist eiga þá, þá þurfi viðkomandi að geta skýrt nákvæmlega frá upphæðinni og samsetningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússar sitja uppi með gamla peningaseðla

Rússar sitja uppi með gamla peningaseðla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk