fbpx
Fimmtudagur 22.maí 2025
Fréttir

Baltasar og Ólafur Jóhann taka höndum saman aftur – Að þessu sinni í íbúð 10B

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. maí 2025 08:59

Ólafur Jóhann og Baltasar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Jóhann Ólafsson hefur skrifað nýtt leikrit fyrir Þjóðleikhúsið sem Baltasar Kormákur mun leikstýra. Leikritið, sem ber heitið Íbúð 10B, kemur í kjölfar kvikmyndarinnar Snertingar, sem hefur notið mikillar hylli. Þeir Ólafur og Baltasar eiga báðir magnaðan feril að baki um allan heim. Bækur Ólafs Jóhanns hafa notið mikilla vinsælda jafnt hér heima sem utan landsteinanna og kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir Baltasars hafa notið vinsælda og sópað að sér verðlaunum víða um heiminn. Þetta er fyrsta sýning Baltasars í leikhúsi um árabil en hann hefur áður meðal annars sett upp rómaðar og margverðlaunaðar sýningar í Þjóðleikhúsinu.  

Í tilkynningu á vef Þjóðleikhússins kemur fram að leikritið Íbúð 10B er ögrandi og meinfyndið verk beint úr íslenskum samtíma. Einn eigenda í glæsilegu fjölbýlishúsi í Reykjavík hefur ákveðið að breyta lúxusíbúð sinni í gistiheimili fyrir hælisleitendur. Nokkrir íbúar í húsinu ákveða að hittast til að leggja á ráðin um viðbrögð við þessari óvenjulegu stöðu. Á borðum eru góðir ostar og vín, en notaleg kvöldstund snýst brátt upp í harðvítug átök þar sem lögmál frumskógarins gilda undir kurteislegu yfirborðinu. 

Meðal leikara í sýningunni eru Björn Thors, Nína Dögg Filippusdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Saga Garðarsdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Baltasar Kormákur leikstýrir, Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmynd, Sunneva Ása Weisshappel búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu.  

Ólafur Jóhann, Baltasar og Magnús Geir.

Meðal leikrita Ólafs Jóhanns eru Rakstur í Þjóðleikhúsinu 2003, Fjögur hjörtu í Loftkastalanum 1997 og leikgerð Sniglaveislunnar hjá Leikfélagi Akureyrar 2001. Meðal rómaðra leikstjórnarverkefna Baltasars Kormáks í Þjóðleikhúsinu eru Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt, en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut. 

Að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsonar þjóðleikhússtjóra er það mikið tilhlökkunarefni að fá nýtt leikrit Ólafs Jóhanns á svið í Þjóðleikhúsinu og Baltasar Kormák í leikstjórastólinn að nýju. Íbúð 10B er frábærlega skrifað leikrit sem er óvænt, fyndið og beitt. Það talar til okkar í dag og í meðförum Baltasars og okkar frábæra leikhúss er ég sannfærður um að það mun hrífa áhorfendur á ólíkum aldri. Það er líka einstaklega ánægjulegt að Baltasar leikstýri nú loks á ný í leikhúsi en hann er meðal okkar allra fremstu leikstjóra. Hans fyrri sýningar eru ógleymanlegar. Að sama skapi er Ólafur Jóhann í hópi okkar ástsælustu höfunda og sýnir hér á sér nýjar og óvæntar hliðar.”  

 Baltasar Kormákur, sem hefur verið einn áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri landsins um árabil, tekur í sama streng og Magnús Geir. „Rætur mínar í leikhúsinu eru sterkar og það er spennandi að halda áfram samstarfi okkar Ólafs Jóhanns, nú í leikhúsinuVerkið er líka það gott að ég bara stenst ekki mátið. Svo fannst mér bara réttur tími að koma aftur í leikhúsið.“ 

Ólafur Jóhann hlakkar til að starfa í leikhúsi að nýju. Ég hef haft ákaflega gaman af samvinnu við leikhúsfólk og hlakka til að sjá Íbúð 10B á Stóra sviði Þjóðleikhússins í meðförum þeirra frábæru listamanna sem að því koma.  Ekki er langt síðan við Baltasar unnum saman að mynd hans Snertingu og var það samstarf eins og best verður á kosið.  Það er tilhlökkun að hefja nýja vegferð með honum, leikhópnum og listrænum stjórnendum enda valinn maður í hverju rúmi. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Stór aðgerð í Vesturbæ Reykjavíkur – Viðbragðsaðilar á Hjarðarhaga

Stór aðgerð í Vesturbæ Reykjavíkur – Viðbragðsaðilar á Hjarðarhaga
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Egill segir samanburð Viðskiptaráðs kjánalegan – „Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði“

Egill segir samanburð Viðskiptaráðs kjánalegan – „Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Trump er ósáttur – „Andlega óhæfur bjáni“

Trump er ósáttur – „Andlega óhæfur bjáni“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Pútín kallar Zelenskyy nasista – Þetta er ástæðan fyrir því

Pútín kallar Zelenskyy nasista – Þetta er ástæðan fyrir því
Fréttir
Í gær

Skellinöðrukrakkar að æra fólk með hávaða – „Andskotans vespuhelvítin ykkar þið voruð að vekja barnið mitt“

Skellinöðrukrakkar að æra fólk með hávaða – „Andskotans vespuhelvítin ykkar þið voruð að vekja barnið mitt“
Fréttir
Í gær

Ágústa gekk hart fram gegn unglingsstúlkum sem maður hennar braut á – „Ég upplifði algjört hrun, af því að ég var búin að berjast svo mikið fyrir öllu“

Ágústa gekk hart fram gegn unglingsstúlkum sem maður hennar braut á – „Ég upplifði algjört hrun, af því að ég var búin að berjast svo mikið fyrir öllu“
Fréttir
Í gær

Gunni Helga reiður og pirraður: Áttaði sig á því í gær að launin hans hefðu lækkað – „Ég skammast mín fyrir að hafa ekki vitað um þetta fyrr“

Gunni Helga reiður og pirraður: Áttaði sig á því í gær að launin hans hefðu lækkað – „Ég skammast mín fyrir að hafa ekki vitað um þetta fyrr“
Fréttir
Í gær

Haukur skammaði Úlfar: Misboðið vegna ummæla í Morgunblaðinu

Haukur skammaði Úlfar: Misboðið vegna ummæla í Morgunblaðinu