

Manchester United hefur fengið slæmar fréttir af Patrick Dorgu, en fyrstu skoðanir hafa leitt í ljós að hann verður líklega frá keppni í um tíu vikur. Athletic segir frá.
Rannsóknir sýna að Dorgu hefur orðið fyrir meiðslum aftan í læri, sem reynast alvarlegri en upphaflega var talið.
Í fyrstu var vonast til þess að um krampa eða minniháttar meiðsli væri að ræða, en frekari skoðanir staðfestu að vandamálið er umfangsmeira. Nákvæm tímalína endurkomu hans er enn í skoðun, en ljóst er að hann mun missa af stórum hluta næstu leikja United.
Meiðsli Dorgu koma á óheppilegum tíma fyrir Manchester United, þar sem hann hefur verið í vaxandi hlutverki hjá liðinu að undanförnu og skoraði frábært mark í sigri á Arsenal um helgina, síðar fór hann meiddur af velli.
Félagið vonast til að hann nái fullum bata án bakslags og geti snúið sterkari til baka síðar á tímabilinu.