
Harry Kane er sagður reyna að sannfæra landsliðsfélaga sinn Marc Guehi um að ganga til liðs við Bayern Munchen, annaðhvort í janúar eða eftir tímabilið.
Samningur Guehi við Crystal Palace rennur út næsta sumar og varnarmaðurinn mun yfirgefa Selhurst Park frítt þegar að því kemur.
Guehi var nálægt því að fara til Liverpool á 35 milljónir punda á gluggadeginum í sumar en Palace hætti við á síðustu stundu.

Bayern, sem leiðir þýsku deildina, hefur fylgst náið með stöðunni og vill tryggja sér Guehi áður en önnur félög koma inn í kapphlaupið.
Guehi má frá og með 1. janúar ræða við erlend félög um að fara frítt þangað næsta sumar, en það er spurning hvort Palace vilji fá inn smá pening fyrir hann í janúar.
Áhuginn er þó alls ekki bundinn við England og Þýskaland. Real Madrid og Barcelona hafa einnig fylgst með stöðunni.