fbpx
Mánudagur 27.október 2025
433Sport

Ten Hag útskýrir af hverju hann tók Rashford af velli í hálfleik í gær – Virtur blaðamaður kallar þetta glórulaust

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 4. október 2024 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti furðu margra þegar Erik ten Hag stjóri Manchester United ákvað að taka Marcus Rashford af velli í hálfleik í 3-3 jafntefli gegn Porto í Evrópudeildinni í gær.

Rashford hafði spilað vel í fyrri hálfleik og töldu flestir að kappinn væri meiddur. Svo var ekki.

„Við verðum að skipta mönnum út, Garnacho byrjaði ekki. Við verðum að hafa leikmenn ferska,“ sagði Ten Hag.

Ten Hag talaði um Aston Villa leikinn á sunnudag sem mikilvægan leik en mörgum þykir þetta furðuleg nálgun.

Henry Winter einn virtasti blaðamaður Englands telur þetta glórualstu. „Furðulegt, Rashford var á flugi. Ógnaði Porto í hvert skipti sem hann fékk boltann, hefði getað skorað eða lagt upp í seinni hálfleik. Glórulaus ákvörðun,“ segir Winter.

Vandræði United halda bara áfram að aukast og aukast en liðið gerði 3-3 jafntefli Porto á útivelli í Evrópudeildinni í gær.

United komst í 0-2 forystu nokkuð snemma leiks þar Marcus Rashford og Rasmus Hojlund skoruðu mörkin. Eftir það hrundi leikur United og heimamenn gengu á lagið, staðan var 2-2 í hálfleik. Diogo Dalot og Matthijs De Ligt voru í stökustu vandræðum í varnarleiknum.

Samuel Omorodion kom Porto svo í 3-2 snemma í síðari hálfleik með öðru marki sínu leiknum en aftur voru Dalot og De Ligt í bullinu. United sótti nokkuð eftir það en Bruno Fernandes var rekinn af velli fyrir háskaleik á 82 mínútu leiksins. Annað rauða spjald Bruno í tveimur leikjum en hann var einnig rekinn af velli í deildinni um liðna helgi.

Allt stefndi í tap United en Harry Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma með skalla eftir horn. United með tvö stig eftir tvo leiki í Evrópudeildinni. Dagar Ten Hag í starfi gætu brátt verið taldir en liðið heimsækir Aston Villa á sunnudag sem gæti orðið hans síðasti leikur með liðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segja að hræðsla muni kosta Íslendinga – „Fólk virðist vera sátt við að setja plástur á það“

Segja að hræðsla muni kosta Íslendinga – „Fólk virðist vera sátt við að setja plástur á það“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Amorim taldi aldrei að Ratcliffe væri að fara að reka sig

Amorim taldi aldrei að Ratcliffe væri að fara að reka sig
433Sport
Í gær

Mjög óvænt klásúla opinberuð í samningi Bruno við United – Getur farið ódýrt næsta sumar

Mjög óvænt klásúla opinberuð í samningi Bruno við United – Getur farið ódýrt næsta sumar
433Sport
Í gær

Vestri og Afturelding féllu úr Bestu deildinni – KR bjargaði sér með öflugum sigri

Vestri og Afturelding féllu úr Bestu deildinni – KR bjargaði sér með öflugum sigri
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slot tjáir sig um Isak

Slot tjáir sig um Isak
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þorsteinn: „Það er bara ekkert að því, bara vopn sem við höfum“

Þorsteinn: „Það er bara ekkert að því, bara vopn sem við höfum“