fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Sport

Ljóst að allt er í steik – Öllum var boðið í myndatöku í gær nema honum

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. október 2023 07:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist vera deginum ljósara að Jadon Sancho hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United, hann hefur æft einn í sjö vikur og ekkert virðist ætla að breytast.

Allir leikmenn Manchester United voru boðaðir í myndatöku í gær þar sem liðsmynd var smellt, Sancho var ekki boðið.

Sancho hefur í tæpar sjö vikur og æft einn eftir að hafa farið í stríð við Erik ten Hag, stjóra félagsins.

Ten Hag neitar að hleypa Sancho á æfingar fyrr en hann biðst afsökunar, hann neitar að gera það en liðsfélagar hans hafa ráðlagt honum að gera það.

Daily Mail segir frá því að Sancho fái ekki að umgangast aðalliðið, hann þarf að borða einn og æfa einn.

Sancho fær að skipta um föt í klefum hjá unglingaliðum félagsins. Hann er hins vegar einn í klefa og er skipað að læsa klefanum á meðan hann skiptir um föt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“