Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskonur í knattspyrnu, eru báðar á lista yfir 100 bestu leikmenn heims árið 2017. Það var Vavel sem opinberaði þennan lista á dögunum. Þar er Guðbjörg, sem er markvörður Íslands og Djurgården í Svíþjóð, í 35. sæti á listanum. Sara Björk, miðjumaður Íslands og hjá þýska meistaraliðinu Wolfsburg, er í 49. sæti. „Það er mjög ánægjulegt að við náum að halda leikmönnum í fremstu röð,“ sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands, um málið. Hann er á þeirri skoðun að Sara eigi að vera miklu ofar á listanum. „Að mínu viti á Sara að vera á meðal efstu 15 á þessum lista, ég segi það og stend við það, Sara Björk er besti miðjumaðurinn í þýsku úrvalsdeildinni. Ég hef ekki séð betri miðjumann, hún á að vera hærra á þessum lista,“ sagði Freyr um Söru. Hann telur að Guðbjörg hafi átt frábært ár með félagsliði sínu en að hún hefði getað gert betur með landsliðinu. „Hún átti frábært tímabil með félagsliði sínu í Svíþjóð og nokkra góða landsleiki, ég held samt, þekkjandi hana rétt, að hún hefði viljað eiga betra ár með íslenska landsliðinu. Það er frábært að eiga leikmenn sem eru á meðal þeirra bestu í heimi og við eigum að setja stefnuna á að hafa alltaf leikmenn í heimsklassa, það má hins vegar aldrei slaka á og við þurfum að hafa fyrir því að eiga slíka leikmenn sem eru alltaf að berjast við þá bestu,“ sagði Freyr í samtali við DV. Íslenska landsliðið fær spennandi verkefni í lok mánaðarins þegar liðið heldur til La Manga og hefur þar með undirbúning sinn fyrir árið, liðið leikur einn leik við Noreg en það kemur í ljós í haust hvort íslenska landsliðið nái að tryggja sig inn á heimsmeistaramótið sem verður haldið í Frakklandi á næsta ári.