
Mikel Arteta og leikmenn Arsenal eru vægast sagt ósáttir við að vítaspyrnudómi í leiknum við Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær hafi verið snúið við.
Liðin mættust í fyrri leiknum í undaúrslitum og fór hann fram á Spáni. Niðurstaðan varð 1-1 jafntefeli en bæði mörkin komu af vítapunktinum. Dómari leiksins dæmdi þá þriðja vítið eftir að Eberechi Eze fór niður í teignum en var dómnum snúið við eftir skoðun í VAR.
„Ég er mjög reiður. Það er óásættanlegt að dítaspyrnudómnum sé snúið við. Þetta fer gegn reglum og ég skil þetta ekki,“ sagði Arteta um ákvörðunina eftir leik.
Framherjinn Viktor Gyokeres, sem skoraði mark Arsenal í leiknum, tók í svipaðan streng. „Ég veit ekki hvernig þeir sneru þessu við. Það virtist vera snerting. En þetta er þeirra ákvörðun,“ sagði hann.
Dæmi hver fyrir sig, hér að neðan er atvikið í hægri endursýningu.
🎥 Was this a penalty on Eberechi Eze? 😬 pic.twitter.com/uceSe5l5wN
— Polymarket FC (@PolymarketFC) April 29, 2026