fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Áhugaverð tillaga Wenger fær byr undir báða vængi

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 2. mars 2026 15:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tillaga Arsene Wenger um róttæka breytingu á rangstöðureglunni hefur fengið grænt ljós frá kanadísku úrvalsdeildinni og verður tilraun gerð með hana þar í landi.

Wenger, sem starfar við knattspyrnuþróun hjá FIFA, vill innleiða reglu þar sem leikmaður er aðeins rangstæður ef það er raunverulegt bil á milli hans og síðasta varnarmanns. Ef einhver hluti líkama hans er í línu við varnarmanninn væri ekki dæmd rangstaða.

Reglubreytingin hefur ekki notið stuðnings hjá UEFA né hjá IFAB en verður nú prófuð í kanadísku úrvalsdeildinni, sem hefst í apríl.

Wenger segir tæknina, eins og VAR, hafa tekið forskotið frá sóknarmönnum. „Ef minnsti vafi leikur á, á hann að falla sóknarmanninum í vil. Með VAR hvarf það forskot,“ hefur Frakkinn sagt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“