fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Nefna þá sem eru líklegir til að fara og vera áfram ef Tottenham fellur

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. mars 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham stendur frammi fyrir hugsanlegu falli úr ensku úrvalsdeildinni og gæti stór hluti leikmannahópsins farið í sumar ef félagið fellur niður í B-deildina. Goal fjallar um málið.

Sérstök ákvæði eru í samningum flestra leikmanna sem fela í sér allt að 50% launalækkun ef liðið fellur úr deildinni. Því er talið líklegt að margar af stærstu stjörnum félagsins myndu vilja fara.

Meðal leikmanna sem gætu farið eru varnarmennirnir Micky van de Ven, Cristian Romero, Pedro Porro og Destiny Udogie. Þeir hafa til að mynda verið orðaðir við ítölsk lið.

Í sókninni gætu leikmenn eins og Xavi Simons, Mohammed Kudus og Randal Kolo Muani einnig leitað annað.

Á sama tíma gætu sumir leikmenn orðið eftir og hjálpað liðinu að berjast fyrir því að komast aftur í efstu deild, þar á meðal Dominic Solanke, Richarlison og Mathys Tel.

Framtíð leikmanna á borð við Dejan Kulusevski, James Maddison og Wilson Odobert er einnig óljós eftir erfitt tímabil þar sem meiðsli hafa sett strik í reikninginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum