fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paul Scholes hefur útskýrt ummæli sín um Michael Carrick, bráðabirgðastjóra Manchester United, eftir að færslu hans á samfélagsmiðlum var harðlega gagnrýnd í síðustu viku.

Scholes vakti mikla athygli eftir 2-1 tap United gegn Newcastle þegar hann skrifaði á Instagram að liðið hefði verið „hræðilegt“ í síðustu leikjum undir stjórn Carrick. Í færslunni sagði hann meðal annars. „Michael hefur örugglega eitthvað sérstakt við sig… því United hefur verið hræðilegt í síðustu fjórum leikjum.“

Færslan, sem hann eyddi síðar, vakti mikla umræðu meðal stuðningsmanna og sérfræðinga og var túlkuð af sumum sem gagnrýni á Carrick.

„Þetta var alls ekki ætlað sem móðgun við Michael. Hann er einn af bestu og ljúfustu  einstaklingum sem þú munt hitta í fótbolta og sá síðasti sem ég myndi vilja móðga,“ sagði Scholes.

Hann sagðist jafnframt hafa sent Carrick skilaboð eftir umtalið. „Ég sendi honum skilaboð og sagði að ég hefði aldrei ætlað að særa hann. Hann sagði að hann hefði alls ekki tekið þessu illa.“

Scholes útskýrði að hann hefði einfaldlega verið að benda á að Manchester United hefði ekki spilað sérstaklega vel í síðustu leikjum, þrátt fyrir að ná góðum úrslitum.

„Ég var ekki að segja að hann væri heppinn stjóri. Ég var að segja að hann væri hæfileikaríkur þjálfari, því liðið hefur náð úrslitum þrátt fyrir að spilamennskan hafi ekki alltaf verið upp á sitt besta,“ sagði Scholes.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra