fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 11:51

Joey Barton - Eiginkona hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Joey Barton var í haldi lögreglu á mánudagsmorgun eftir að hafa verið handtekinn grunaður um alvarlega líkamsárás í kjölfar slagsmála á golfklúbbi í Englandi.

Samkvæmt upplýsingum var Barton einn af tveimur mönnum sem handteknir voru eftir átök nærri Huyton og Prescot Golf Club í Merseyside. Neyðarþjónusta var kölluð á vettvang á sunnudagskvöld eftir að tilkynnt var um árás. Einn maður var fluttur á sjúkrahús með áverka á andliti og rifbeinum.

Talið er að rifrildi hafi hafist inni í klúbbhúsinu áður en átökin færðust út fyrir bygginguna. Enska blöð  herma að vopn hafi mögulega verið sótt utan frá og að Barton kunni að hafa verið að verja sig í átökunum.

Lögreglan í Merseyside staðfesti að tveir menn, 50 og 42 ára, hafi verið handteknir grunaðir um alvarlega líkamsárás. Þeir eru nú í haldi lögreglu þar sem rannsókn málsins stendur yfir.

Barton, sem er 42 ára, lék á sínum tíma með liðum á borð við Manchester City, Newcastle United, QPR, Marseille, Burnley og Rangers. Hann spilaði einnig einn landsleik fyrir England.

Eftir að hafa lagt skóna á hilluna árið 2017 hóf hann þjálfaraferil og stýrði meðal annars Fleetwood Town og síðar Bristol Rovers. Hann var rekinn frá Bristol Rovers í upphafi tímabilsins 2023-24 eftir slakt gengi liðsins.

Frá þeim tíma hefur Barton ekki snúið aftur í þjálfun en hefur meðal annars haldið úti hlaðvarpi sem ber heitið Common Sense with Joey Barton.

Hann hefur áður lent í ýmsum lagalegum vandræðum á ferli sínum, bæði á meðan hann var leikmaður og eftir að hann hætti í atvinnumennsku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir