

Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan sat ekki á sér eftir nýjustu ummæli Eni Aluko um Ian Wright og hlutverk karla í umfjöllun um kvennafótbolta.
Aluko hefur áður beðist afsökunar á því að hafa sakað Wright um að loka á tækifæri fyrir konur í fjölmiðlum, en hefur nú vakið athygli á ný með ummælum sínum í hlaðvarpinu 90s Baby Show.

Þar gagnrýndi hún að tveir af sex sérfræðingum í umfjöllun BBC og ITV um úrslitaleik EM kvenna, þar sem England sigraði Spán, hefðu verið karlar, Wright og Nedum Onuoha, á meðan hún sjálf og Fara Williams sátu í stúkunni.
„Konur ættu ekki að vera í öðru sæti í eigin íþrótt,“ sagði hún til að mynda. Ummælin vöktu hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum, ekki síst hjá Morgan, sem sagði Aluko hreinlega óþolandi.

„Ef hún hefði einn tíunda af þeim hæfileikum sem hún heldur að hún hafi, væri hún samt hvergi nærri hæfileikum Ian Wright, hvorki innan vallar né utan,“ skrifaði Morgan á X.
Fleiri hafa gagnrýnt Aluko fyrir þetta athæfi. Laura Woods, sem hefur slegið í gegn sem þáttastjórnandi í kringum fótbolta á Englandi, skrifaði einfaldlega: „Vá.“ Aðspurð sagðist hún þá ekki ætla að koma Aluko til varnar, en þær hafa starfað saman í sjónvarpi áður.