fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Haaland uppljóstrar því hvað hann sagði við Szoboszlai fyrir vítaspyrnuna

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erling Haaland segir að hann hafi ekki viljað ræða við Dominik Szoboszlai, fyrrum liðsfélaga sinn, rétt áður en hann tók afdrifaríka vítaspyrnu gegn Liverpool.

Norski framherjinn tryggði Manchester City mikilvægan sigur þegar hann skoraði úr vítaspyrnu í uppbótartíma og fullkomnaði þar með magnaða endurkomu liðsins. Liverpool hafði komist yfir með stórglæsilegu aukaspyrnumarki frá Szoboszlai, en City hélt lífi í titilvonum sínum með sterkum lokakafla.

Rétt áður en Haaland steig á punktinn reyndi Szoboszlai að trufla hann. Þeir þekkjast vel eftir að hafa leikið saman hjá RB Salzburg í Austurríki áður en Haaland fór til Borussia Dortmund.

Haaland sagði eftir leikinn að hann hafi ekki haft áhuga á samræðum á þessum tímapunkti. „Hann byrjaði að tala við mig. Einnig Alexis Mac Allister, en ég man ekki hvað þeir sögðu, ég var bara að einbeita mér,“ sagði Haaland.

Hann bætti við. „Ég sagði við hann: ‘Þetta er í fyrsta skipti sem ég vil ekki tala við þig, svo farðu í burtu.’“

Haaland viðurkenndi að hafa fundið fyrir stressi. „Að lokum var ég stressaður en ég er bara ánægður að hafa skorað,“ sagði hann.

Markið reyndist afar dýrmætt fyrir City í harðri titilbaráttu tímabilsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug