

Fyrrum landsliðsframherjinn Andy Carroll er sakaður um að hafa brotið nálgunarbann gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, Billi Mucklow, með því að hringja ítrekað í hana. Málið kom fyrir dómstól í Chelmsford á dögunum.
Carroll, 37 ára, sem áður lék með Newcastle og Liverpool, var handtekinn á Stansted-flugvelli í apríl á síðasta ári fyrir meint brot á banninu. Handtakan vakti athygli þar sem hún átti sér stað fyrir framan aðra farþega á flugvellinum.
Framherjinn mætti fyrir dóm á hækjum eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna beinbrots og liðbandameiðsla. Hann er ákærður fyrir að hafa ítrekað hringt í Billi í mars á síðasta ári, en þau eiga saman þrjú börn.

Carroll og Mucklow gengu í hjónaband árið 2022 en tilkynntu skilnað tveimur árum síðar. Carroll hafði haldið framhjá Mucklow rétt fyrir brúðkaup þeirra og komst það í fréttirnar.
Fyrir dómi staðfesti Carroll nafn sitt, heimilisfang og fæðingardag en óskaði eftir að málið færi fyrir krúnudómstól.

Dómarinn Roy Brown tilkynnti honum að næsta þinghald yrði 4. mars hjá Chelmsford Crown Court, þar sem hann verður beðinn um að taka afstöðu til sakargifta. Ef hann neitar sök verður málið sett á dagskrá til aðalmeðferðar.
Nálgunarbann er dómsúrskurður sem ætlað er að koma í veg fyrir að einstaklingur hafi samband við eða nálgist ákveðna manneskju eða stað.
Frá árinu 2024 hefur Carroll verið í sambandi við hárgreiðslukonuna Lou Teasdale. Málið er enn í réttarfarslegu ferli og óljóst hvenær endanleg niðurstaða fæst.