fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þetta er ástæða þess að Ronaldo neitaði að spila – Er að verða brjálaður á því að vinna ekki titla

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo greip til þess óvenjulega ráðs að neita að æfa og mótmæla aðstæðum hjá Al-Nassr fyrir leik liðsins gegn Al-Riyadh. Samkvæmt portúgölskum miðlum er ástæðan óánægja hans með skort á metnaði félagsins á félagaskiptamarkaðnum.

Ronaldo, sem er fertugur, þénar gríðarlegar upphæðir í Sádi-Arabíu og skrifaði síðasta sumar undir nýjan risa samning. Þrátt fyrir það er hann sagður ósáttur við hvernig staðið hefur verið að leikmannakaupum, sérstaklega í samanburði við helstu keppinauta.

Sérstaklega er bent á hlutverk Public Investment Fund, sem á meirihluta í stærstu félögum landsins, þar á meðal Al-Nassr, Al-Hilal, Al-Ittihad og Al-Ahli. Ronaldo telur að Al-Hilal hafi fengið meiri stuðning og sterkari leikmannakaup.

Mótmæli hans koma skömmu eftir að Karim Benzema neitaði að spila fyrir Al-Ittihad eftir að hafa fengið samningstilboð sem hann taldi óásættanlegt. Benzema er nú orðaður við Al-Hilal.

Ronaldo hefur enn ekki unnið innlendan titil með Al-Nassr og það virðist fara í taugarnar á honum. Liðið er stigi á eftir toppliði Al-Hilal og Ronaldo hafði vonast til meiri fjárfestingar í janúarglugganum til að minnka bilið.

Á meðan nýtur hann þó lúxuslífs utan vallar. Hann og maki hans, Georgina Rodriguez, hafa fest kaup á glæsivillum við Rauðahafsströnd Sádi-Arabíu. Þrátt fyrir það virðist keppnisskapið enn ráða ríkjum hjá Portúgalanum sem vill skilja eftir sig titla, ekki bara mörk og tekjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs