

Jesse Lingard er sagður á leið aftur út á völl og gæti gengið til liðs við brasilíska stórliðið Corinthians.
Lingard, sem er 33 ára gamall, hefur verið án félags síðan hann yfirgaf suðurkóreska liðið FC Seoul í desember. Þar skoraði hann 19 mörk í 67 leikjum, en hefur nú verið félagslaus í rúma tvo mánuði.
Enska landsliðsmaðurinn fyrrverandi var orðaður við Wrexham og hollenska félagið Feyenoord, en samkvæmt Fabrizio Romano er hann nú nálægt því að semja við Corinthians í Brasilíu. Einnig er sagt að félag úr MLS-deildinni hafi lagt fram tilboð á síðustu stundu.
Ef af verður mun Lingard sameinast aftur fyrrum liðsfélaga sínum hjá Manchester United, Memphis Depay. Hollendingurinn hefur verið hjá Corinthians síðan í september 2024 og skorað 19 mörk í 73 leikjum.
Þeir Lingard og Depay léku saman í 18 mánuði á Old Trafford og gætu nú myndað öflugt sóknarpar á ný. Depay náði þó aldrei að festa sig í sessi hjá United og skoraði aðeins sjö mörk í 53 leikjum áður en hann fór árið 2017.