fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Óvænt tíðindi af Hlíðarenda – „Ég held að ég væri búinn að fá símtal frá frænda ef hann vissi af þessu“

433
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

VAlur hefur áhuga á því að kaupa Kristófer Inga Kristinsson framherja Breiðabliks og virðast viðræður um það vera í gangi. Fjallað var um málið í Dr. Football hlaðvarpinu.

Þar kom fram að Valur hefði boðið leikmann í skiptum og að Adam Ægir Pálsson væri sá leikmaður sem Valur væri til í að nota sem skiptimynt.

„Valur bauð leikmann í skiptum fyrir Kristófer, það var Adam Ægir Pálsson,“ sagði Albert Brynjar Ingason í hlaðvarpinu í dag en og Adam Ægir Pálsson eru tengdir fjölskylduböndum.

Albert segir að Adam Ægir viti ekki af þessu samtali félaganna. „Það kemur mér mjög á óvart, hann hefur ekki fengið þau skilaboð frá Val að þeir vilji losa hann. Hann heldur að hann sé í hlutverki þarna.“

„Ég held að ég væri búinn að fá símtal frá frænda ef hann vissi af þessu. Valur má ekki við því að missa neinn, ekki leikmenn út heldur menn inn.“

Valur er að ganga í gegnum nokkrar breytingar en Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun liðsins í vetur og á að smíða nýtt lið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða