fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gefur upp upplýsingar sem hann heyrði um stöðu Foden á bak við tjöldin – Er þetta að angra hann?

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Richard Keys heldur því fram að hann hafi fengið upplýsingar um að Phil Foden eigi í erfiðleikum með kröfurnar sem fylgja því að vera leikmaður á allra hæsta stigi.

Foden hefur skorað 10 mörk og lagt upp fimm í deildinni á tímabilinu með Manchester City, en hefur undanfarið verið inn og út úr liðinu og byrjað aðeins einn af síðustu fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Hann hefur ekki skorað síðan gegn Crystal Palace í desember og spilaði aðeins þrjár mínútur í 2-1 sigri á Newcastle United um helgina.

„Hvað hefur komið fyrir? Hann er klárlega ekki meiddur því hann er alltaf á bekknum þegar hann byrjar ekki,“ segir Keys.

„Munið þið þegar Guardiola var alltaf að tala um veikindi hans á síðustu leiktíð. Ég velti fyrir mér hvaða veikindi það eru.

Mér er sagt að Foden eigi erfitt með að ráða við þær kröfur sem fylgja því að vera knattspyrnumaðr á allra hæsta stiginu. Ef það er satt finn ég til með honum og vona að þetta sé eitthvað sem hann getur yfirstigið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug