fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára

433
Mánudaginn 23. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljóst er að reksturinn á knattspyrnudeild Vals stendur traustum fótum. Samkvæmt rekstrarreikningi fyrir árið 2025 nam hagnaður Knattspyrnudeildar Vals á árinu 2025 46,4 millj. kr.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og söluhagnað leikmanna nam 39,1 millj. kr. en áætlun ársins gerði ráð fyrir 5 millj. kr. rekstrarhagnaði og eru því frávik 34,1 millj. kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir knattspyrnudeildar 214,6 millj. kr. Bókfært eigið fé knattspyrnudeildar í árslok er 178,3 millj. kr.

Meira:
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Tekjur deildarinnar voru 586 milljónir samanborið við 490 milljónir árið á undan. Styrkir og auglýsingar voru 332 milljónir af tekjum en voru árið á undan 251 milljón.

Nokkur hækkun var á launakostnaði sem var 391 milljón á síðasta ári og hækkar um tæpar 40 milljónir á milli ára. Skammtímaskuldir eru 36 milljónir og hækka um 22 milljónir á milli ára.

Valur keypti leikmenn fyrir 35 milljónir en seldi leikmenn fyrir 34 milljónir en liðið seldi Gylfa Þór Sigurðsson og Tómas Bent Magnússon á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug