fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

433
Föstudaginn 20. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild ÍA hefur opinberað ársreikning sinn fyrir árið 2025. Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 54,2 millj. kr. Eigið fé í árslok nam 235,2 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Rekstrartekjur félagsins jukust hressilega á milli ára og voru 425 milljónir en voru tæpar 400 milljónir árið 2024.

Launakostnaður hækkaði hressilega en laun og verktakagreiðslur voru um 264 milljónir og er hækkunin í kringum 24 milljónir á milli ára.

Félagið fékk árið 2025 rúmar 100 milljónir fyrir sölu á leikmönnum en Hinrik Harðarson var seldur til Odd í Noregi svo dæmi sé tekið.

Félagið átti um 31 milljón í handbært fé í árslok en rétt tæpa milljón árið á undan. Skuldir félagsins voru 16 milljónir í árslok og höfðu lækkað um 13 milljónir á milli ára. Þá á félagið 231 milljón í óráðstafað eigið fé.

ÍA fékk á síðasta ári 93 milljónir frá styrktaraðilum sem er veruleg hækkun frá fyrra ári þegar styrkirnir voru um 70 milljónir.

Góður rekstur ÍA hefur sést í vetur þar sem félagið hefur verið virkt á félagaskiptamarkaðnum og launakostnaður að öllum líkindum hærri árið 2026 en hann var í fyrra.

Reikninginn má lesa í heild hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða