fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Dularfullt andlát í vikunni – Fannst úti í skógi skömmu eftir að hafa öðlast réttindi sem lögreglumaður

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum ítalskur knattspyrnumaður, Christian Jidayi, er látinn aðeins 38 ára að aldri eftir að hafa fundist látinn í skógi við Ravenna á Ítalíu. Dauði hans er sagður dularfullur og er nú til rannsóknar hjá lögreglu.

Jidayi var eftirlýstur eftir að hann mætti ekki til vinnu á þriðjudag, sem vakti áhyggjur samstarfsmanna hans. Þeir höfðu samband við fjölskyldu hans sem tilkynnti hvarf hans til lögreglu. Síðar sama kvöld fannst lík hans í furuskógi í Lido Adriano, nálægt Ravenna, eftir að lögregla rakti farsíma hans.

Jidayi lék sem atvinnumaður í ítölsku deildunum í rúman áratug og spilaði meðal annars í Serie A með Novara tímabilið 2011-12. Þá lék hann einnig með félögum á borð við Cesena, Pro Patria og Forli sem traustur hægri bakvörður.

Eftir að hann lagði skóna á hilluna árið 2017 sneri hann sér að þjálfun og starfaði meðal annars sem aðstoðarþjálfari hjá San Marino Calcio. Hann stýrði liðinu einnig í einum leik árið 2019.

Síðar hóf hann störf hjá lögreglunni í Ravenna og hafði nýlega staðist próf sem gerði honum kleift að ganga formlega til liðs við lögreglulið héraðsins.

Dánarorsök hefur ekki verið staðfest og rannsókn stendur yfir á andláti hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða