

Arsenal eru að eiga erfitt uppdráttar í ensku úrvalsdeildinni og nýjasta niðurstaðan gæti reynst dýrkeypt í baráttunni um titilinn. Liðið gerði jafntefli gegn botnliði Wolves á miðvikudagskvöld þegar það missti niður tveggja marka forskot og opnaði titilbaráttuna upp á gátt.
Lærisveinar Mikel Arteta virtust með öll völd í leiknum fyrsta klukkutímann og komust í 2-0 með mörkum frá Bukayo Saka og Piero Hincapie sitt hvoru megin við hálfleik. En Hugo Bueno minnkaði muninn með glæsilegu marki og kveikti spennu í leiknum.
Undir lokin hrundi leikur Arsenal. David Raya missti af fyrirgjöf og Gabriel Magalhaes náði ekki að hreinsa frá, sem varð til þess að varamaðurinn Tom Edozie jafnaði í uppbótartíma.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Arsenal missir forskot sitt, en liðið er þó enn í baráttunni á öllum vígstöðvum þrátt fyrir þetta áfall.
Arsenal er með 58 stiga sem í sögulegu samhengi er mjög lítið miðað við undanfarið ár eftir 27 leiki. Liverpool var með 64 stig í fyrra á sama tíma.
Árið 2019/20 var Liverpool komið með 79 stig. Leicester var á svipuðu róli og Arsenal fyrir tíu árum en liðið var þá með 56 stig og varð meistari.
