

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdarstjóri KSÍ, segir að sambandið fylgist náið með veðmálum leikmanna í efstu deild karla og kvenna. Þetta kom fram í viðtali við Þungavigtina.
Nokkur atvik hafa komið upp síðustu ár þar sem leikmenn hafa fengið bönn fyrir að veðja á leiki hér á landi. Strangar reglur eru um þetta.
„Það er verið að taka prufur og er verið að renna þessu í gegn, við fáum flöggun ef það er eitthvað er óeðlilegt. Við munum ekki hætta því, við verðum að standa vörð um heilindi leiksins,“ sagði Eysteinn um veðmál leikmanna við Þungavigtina.
„Það er fólk innandyra í þessu og því flaggað, ég er ekki með upplýsingar um nein ný mál.“
Sambandið fór í herferð síðasta haust, Kristján Óli Sigurðsson sem tók viðtalið við Eystein telur að sambandið hafi þar notað aðila sem ekki ættu að taka þátt í svona verkefni. Sagðist hann hafa sent Eysteini línu um leið og efnið birtist.
„Þeir sem eru í þessu og birtast í svona efni, þeir þurfa að vera óumdeildir,“ sagði Kristján Óli.
Eysteinn sagði að sambandið væri alltaf að vanda sig. „Ég man að þú sendir mér, ég kom alveg af fjöllum með það atriði. Við erum alltaf að vanda okkur.“