fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Beitir út í stjórnmálin – „Miðflokkurinn hefur skapað sér sess með orðræðu sem ég tengi við“

433
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 14:00

Beitir Ólafsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beitir Ólafsson hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitastjórnarkosningum. Hann greindi frá þessu í dag.

Beitir, sem á að baki flottan knattspyrnuferil hér á landi fyrir KR, HK og Keflavík, segist hafa hrifist af Miðflokknum og þeirra orðræðu. Áhugi hans á pólitík hafi jafnfarmt stóraukist með árunum, en hann er 39 ára gamall.

Tilkynning Beitis
Kæru vinir og Kópavogsbúar,

Ég hef gefið mig á tal við Miðflokksnefnd hér í Kópavogi og óskað eftir sæti á lista hjá þeim í komandi sveitarstjórnarkosningum. Miðflokkurinn hefur skapað sér sess með orðræðu sem ég tengi við. Þeir talað um málefnin umbúðarlaust, sett þau í hendur almennings til að vega og meta, skapað umræðu og umhugsun. Sum hver auðmeltanlegri en önnur, opnað á pólitíska innsýn í samfélaginu í þágu almennings og oftar en ekki synt á móti straumnum.
Áhugi minn á pólitík hefur vaxið til muna eftir að fleiri ár hafa komið á beltið. Ég bý að þeim forréttindum að alast upp og halda úti fjölskyldu hér í Kópavogi. Ég starfa í einkageiranum sem verktaki og er fyrrverandi knattspyrnumaður, ég er fyrst og fremst sonur, faðir, eiginmaður og hundaeigandi.

Kópavogur sem sveitarfélag á að skapa sér sín eigin grunngildi. Við þurfum að verja almannaféi betur, gera það af skynsemi, rökhyggju og með virðingu við bæjarbúa, Við höfum ekki efni á að fara í óþarfa og kostnaðarsamar aðgerðir þegar betur mætti standa að þjónustu við íbúa. Við eigum að vera leiðandi í þjónustu við íbúa, auka pólitíska innsýn og auka vitundarvakningu meðal þeirra. Ákveðin gildi í þágu bæjarbúa hafa tapast þegar kemur að grunnþjónustu. Þar skipa skipulagsmál stóran sess, hvort sem það er þétting byggðar, uppboð á lóðum sem skilar sér í hækkun fasteignaverðs, og eða kostnaðarsöm Borgarlína með tilheyrandi aðför að einkabílnum.

Kópavogur býr yfir einu öflugasta íþróttastarfi sem völ er á. Íþróttafélögin eru þau fjölmennustu og framboðið mikið. Samtal þarf að eiga sér stað á milli Kópavogsbæjar og íþróttafélaga svo ríki sátt þegar kemur að uppbyggingu mannvirkja og framfaraþróun iðkenda. Efla þarf tómstunda, æskulýðs og kirkju starfið, kynna starfið í skólum og opna á alla þá möguleika sem störfin hafa uppá að bjóða. Leikskólinn þarf að virka fyrir alla, kennara jafnt við foreldra. Ánægja og líðan kennara hvort sem það er í skóla eða leikskóla skiptir sköpun upp á gott starfsumhverfi og til að búa til sem besta samfélag utan um börnin sem þar dvelja. Foreldrar þurfa að geta stundað sína vinnu á meðan barnið er í góðum höndum. Leikskóli og skóli eru án efa hluti af mikilvægustu stofnunum sem sveitafélag rekur og þær má ekki vanrækja. Koma þarf á aðhaldi og aga innan veggja grunnskólana, auka mátt, úrræði og stuðning við kennara og byggja á góðu samstarfi með foreldrum.

Það er mikil tilhlökkun hjá mér að leggja mitt að mörkum í uppyggingu Kópavogs og leggja metnað í starfið í þágu sveitafélagsins og íbúa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims