fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hiti á fréttamannafundi í Laugardal: Ágúst þjarmaði að Þorsteini – „Er það eitthvað flókið?“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Orri Arnarson, fréttamaður Sýnar, þjarmaði að Þorsteini Halldórssyni, þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, varðandi það að liðið hafi ekki spilað leiki í síðasta opinbera landsleikjaglugga.

Ísland spilaði enga leiki í glugganum í nóvember, á meðan mörg önnur landslið voru á ferðinni. KSÍ fór ekki leynt með það fyrir áramót að ástæðurnar væru fjárhagslegar.

Ágúst vildi þó fá álit Þorsteins á þessu á fundinum í dag, hvar Þorsteinn opinberaði hópinn fyrir fyrstu leiki í undankeppni HM, gegn Spáni og Englandi.

Þorsteinn svaraði Ágústi á þann veg að hann þyrfti að spyrja fólkið í stöðunum fyrir ofan sig, þau sjái um þessi mál. Ágúst saumaði þó áfram að Þorsteini, spurði hann út í þær ástæður sem honum hafi verið gefnar.

„Er það eitthvað flókið, að það þurfi að spyrja fólkið sem er fyrir ofan mig?“ spurði Þorsteinn þá, en gaf Ágústi að lokum áðurnefnda ástæðu, þær hafi verið fjárhagslegar.

Þess má geta að Ísland mætir heimsmeisturum Spánar 3. mars og Evrópumeisturum Englands fjórum dögum síðar. Báðir leikir fara fram ytra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs