fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hefur gengið í gegnum helvíti í þrjú ár – Vonast til að ná kraftaverki með aðstoð konu sinnar og barna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 10:00

Gerard Deulofeu og fjölskylda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænski kantmaðurinn Gerard Deulofeu hefur ekki spilað leik síðan í janúar 2023 með Udinese, en trúir enn að hann geti snúið aftur á völlinn, þrátt fyrir að hafa upplifað eitthvað erfiðasta endurhæfingarferli sem þekkst hefur í íþróttinni.

Deulofeu sleit krossband en það sem gerði meiðslin sérstaklega alvarleg var sýking sem fylgdi í kjölfarið sem eyddi brjóski í hnénu. „Ef þetta hefði bara verið krossbandið hefði ég verið kominn aftur fyrir tveimur árum,“ segir hann.

Hann hefur gengist undir frumumeðferð til að reyna að endurbyggja brjóskið og eyðir nú þremur til fjórum klukkustundum á dag, fimm daga vikunnar, í æfingar á æfingasvæði félagsins. Markmiðið er einfalt, að geta hlaupið aftur án verkja. „Ég finn að ég er nálægt þessu,“ segir hann, þó hann viðurkenni að óvissan sé mikil.

Ferlið hefur tekið gríðarlega á, hann gat um tíma hvorki gengið með börnum sínum né ekið bíl. Fjölskyldan hefur hins vegar verið honum sem klettur og börnin hans hvetja hann daglega til að snúa aftur.

Deulofeu á að baki farsælan feril með félögum á borð við Barcelona, AC Milan, Everton og Sevilla, auk þess að hafa spilað fyrir spænska landsliðið.

Endurkoma Deulofeu yrði kraftaverk, en það er það sem hann stefnir á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs