fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Framkvæmdastjórinn segir fallið í fyrsta verkefni Arnars dýrkeypt – Félögin í landinu þurfa að taka á sig högg vegna þess

433
Mánudaginn 16. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fall karlalandsliðsins úr B-deild í C-deild Þjóðadeildar kostar KSÍ um 60 milljónir króna og er ein ástæða þess að knattspyrnusambandið ákvað að hækka gjöld á félögin í landinu. Þetta kom fram í máli Eysteins Péturs Lárussonar, framkvæmdarstjóra KSÍ, á X-997 um helgina þegar hann mætti sem gestur í útvarpsþátt Fótbolta.net.

Félögin í landinu hafa fengið miklar hækkanir á sig á þessu ári þegar kemur að þáttökugjaldi. Eysteinn segir að KSÍ hafi þurft að lokka um 180 milljóna króna gati í rekstri sínum, félögin taka stóran hlut af því á sig en hagræðing innan veggja KSÍ er einnig í gangi. Eysteinn segir fallið niður í C-deild eina af ástæðum þess að félögin þurfi að borga meira en undanfarin ár.

„Við stóðum frammi fyrir því að það eru breytingar, hvernig við tekjufærum styrki frá UEFA og lækkandi tekjur. Eins og í Þjóðadeildinni, að detta niður í C-deild hafði áhrif. Við urðum að brúa 170-180 milljóna bil,“ sagði Eysteinn Pétur í útvarpsþætti Fótbolta.net.

Eysteinn segir að KSÍ vilji skila ársreikningi sínum í plús og að það hafi þurft að fara einhverjar leiðir.

„Þetta var tilkynnt í nóvember, við vorum að skoða hvernig þetta kæmi út. Við þurfum að skila áætlun í plús, það var farin sú leið að allir tækju eitthvað á sig. Gjöldin á félögin hafa verið mjög lág, þetta hefur ekki fylgt neinu verðlagi. Það hefur setið eftir hjá sambandinu. Þetta eru þær tillögur sem við komum með, við höfum ekki fengið betri tillögur til að skila ársreikningi í plús.“

„Við ætlum að skila áætlun í plús, við erum að taka niður 60-70 milljónir í landsliðskostnað og lækka kostnað á skrifstofunni. Það er hart í ári, þetta er leiðin sem við fórum.“

Íslenska landsliðið féll úr B-deild Þjóðadeildarinnar í mars á síðasta ári, um var að ræða fyrsta verkefni Arnars Gunnlaugssonar með liðið og tapaði liðið í tveggja leikja einvígi gegn Kosóvó. Liðið mun leika í C-deild og óttast Eysteinn að miðasala muni ekki ganga vel á þá leiki.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli. B-deildin er mun skárri en C-deildin, en við getum þakkað fyrir það sem kom úr hattinum. Ekki löng ferðalög, þetta eru í kringum 50-60 milljónir sem er minna í C-deild en er í B-deild. Það koma færri á völlinn, en við getum fengið eitthvað til baka með því að vinna þessa deild.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“