fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Telur að Besta deildin fái ekki svona góðan samning aftur – Vonar að ekki verði farið sömu leið og handboltinn

433
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 13:54

Hjörvar Hafliðason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjörvar Hafliðason, stjórnandi Dr. Football, vakti athygli á því í þætti sínum að samningur Bestu deildarinnar og Sýn væri að renna út í haust. Sjónvarpsrétturinn verður því aftur til sölu.

Hjörvar sat við borðið fyrir Viaplay fyrir um fimm árum síðan þegar samningar voru gerðir. Hjörvar telur að fótboltinn fái ekki svona samning aftur.

„Ég var inni í þessu fyrir fimm árum með Viaplay, ég held að þeir fái ekki svona samning aftur,“ sgaði Hjörvar.

Hann sagði að mögulega þyrfti deildin að gefa eftir til að halda áfram sýnileika og benti á handboltann sem fór af Sýn fyrir nokkru síðan. Handboltinn er nú með passa í gegnum Símann og hefur minni umfjöllun verið vond fyrir handboltann.

Hann nefndi að körfuboltinn hefði haldið vinsældum síðan með því að semja við Sýn en handboltinn krafðist þess að fá meiri fjármuni en Sýn vildi borga.

„Núna hef ég áhyggjur af fótboltanum, um leið og þú ferð í platform sem er ekki með fréttastofu og vefsíðu. Handboltinn er víti til varnaðar, þú getur klúðrað öllu í þessu lífi.“

„Það er það eina sem maður vonar, þú verður að hafa tengingu í fréttastofu. Þú verður að hafa alla þessa umgjörð í kringum þig.“

Hann segir að fótboltinn verði að velja rétt. „Þetta verður stór ákvörðun fyrir fótboltann, þú býrð í heimi þar sem fólki finnst í lagi að ræna í þessu sjóræningabulli sínu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“