

Melanie Chisholm, betur þekkt sem Mel C úr Spice Girls, segist afar þakklát fyrir að hafa alið dóttur sína upp utan sviðsljóssins, sérstaklega í ljósi fjölskylduerja sem nú eru í gangi hjá fyrrverandi hljómsveitarfélaga hennar, Victoria Beckham.
Victoria og eiginmaður hennar David Beckham eru í miðjum stormi eftir að sonur þeirra úthúðaði þeim í opinberri yfirlýsingu.
Í viðtali við Sunday Times ræddi Mel C um 16 ára dóttur sína, Scarlett, og sagði hana ekki hafa neinn áhuga á því að feta í fótspor móður sinnar í tónlistarheiminum. „Ég er svo fegin,“ sagði Chisholm.
„Það er rosalega erfitt að alast upp í skugga foreldris sem hefur náð miklum árangri.“
Hún bætti við að ákvörðunin um að halda Scarlett frá fjölmiðlum hafi verið meðvituð ákvörðun frá barnæsku. „Hún er ekki í sviðsljósinu og það var algjörlega viljandi,“ sagði hún og vísaði jafnframt til þess að aðrir vinir hennar hefðu farið aðrar leiðir, án þess þó að dæma það.
Ummæli Mel C koma í kjölfar þess að Brooklyn Beckham, elsti sonur Victoriu og David Beckham, birti harða yfirlýsingu þar sem hann sakaði foreldra sína um að stjórna frásögn fjölskyldunnar í fjölmiðlum og sagðist ekki vilja sættast að svo stöddu.
Þrátt fyrir þetta hafa yngri systkini Brooklyn sýnt samstöðu og haldið áfram að birtast saman opinberlega, meðal annars á tískuvikunni í París, þar sem fjölskylduböndin virtust sterk þrátt fyrir allt.