

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur hert gagnrýni sína á dómaramál og forystu enska dómarasamtakanna, eftir beitta og háðslega gagnrýni um helgina. Tilefnið var ákvörðun um að dæma ekki vítaspyrnu fyrir meinta hendi Yerson Mosquera í 2-0 sigri City gegn Wolves á laugardag.
Dómarinn Farai Hallam, sem var að dæma sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni, var sendur í skjáinn eftir langa VAR-yfirferð en ákvað að standa við upphaflega ákvörðun sína. Það fór fyrir brjóstið á Guardiola, sem telur að slíkar ákvarðanir fari oftar en ekki gegn City.
Á blaðamannafundi í dag sagði Guardiola að hann skildi að dómarar og sérfræðingar vernduðu hver annan, en hann yrði að verja sitt félag. „Ég gagnrýndi aldrei dómara á síðasta tímabili, sem var það versta hjá okkur í tíu ár. Þegar ég geri það núna, þá hef ég rök fyrir því,“ sagði hann.
Guardiola bætti við að hann hefði alla tíð sýnt dómurum virðingu, en nú sæi hann mynstur sem hann gæti ekki horft fram hjá. Hann tók einnig fyrir ummæli Howard Webb, yfirmanns dómaramála, sem hafði varið hættulega tæklingu Diogo Dalot á Jeremy Doku í Manchester-slagnum.
„Dómarinn átti stórkostlega frumraun, nú þekkja allir nafnið hans,“ sagði Guardiola háðslega.
„Ég er viss um að Howard Webb muni mæta í fjölmiðla á morgun og útskýra hvers vegna þetta var ekki vítaspyrna, rétt eins og eftir United-leikinn.“
Guardiola sagði að Doku hefði ekki getað spilað í Noregi vegna tæklingarinnar og krafðist skýringa strax. „Ekki bíða til miðvikudags, við erum í Meistaradeildinni þá. Komdu og útskýrðu þetta,“ sagði hann að lokum.