

Brooklyn Beckham og eiginkona hans, Nicola Peltz, hafa fengið tilboð upp á meira en milljón punda fyrir að skrifa bók um átökin innan Beckham-fjölskyldunnar.
Átökin blossuðu upp eftir brúðkaup parsins árið 2022 og nálgast þau suðumark þessa stundina, eins og mikið hefur verið fjallað um.
Útgefandinn Penguin Random House, sem gaf meðal annars út bók Harry Bretaprins, Spare, er sagður í viðræðum við Peltz og Brooklyn.
Samkvæmt The Sun er mikill áhugi á að heyra meira frá hlið Brooklyn, sem er sagður tilbúinn að rjúfa öll tengsl við foreldra sína, David og Victoriu Beckham.
Talið er að hann hafi mikið að segja og að möguleikarnir séu nánast endalausir, bæði hvað varðar bók og hugsanlegt sjónvarpsviðtal.