
Patrick Vieira, goðsögn Arsenal, var gagnrýninn á Mikel Arteta eftir 3-2 tap liðsins gegn Manchester United í gær.
Arsenal komst yfir í leiknum og útlitið var bjart, en mistök Martin Zubimendi hleyptu United inn í leikinn og unnu gestirnir að lokum.
„Mér fannst Arsenal ekki taka nægilega mikla áhættu. Það eru of margar sendingar aftur á bak í stað þess að sækja fram,“ sagði Vieira eftir leik.
„Leikur liðsins virkar stífur og það er eins og menn séu stressaðir. Ég vil sjá Arsenal vera hugrakkara.“
Forskot Skyttanna á toppi deildarinnar er aðeins fjögur stig eftir leiki helgarinnar.