fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Varð næst launahæsti leikmaður City í gær – Mun þéna meira en 200 milljónir á mánuði

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 15:30

Marc Guehi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marc Guéhi er orðinn næsthæst launaði leikmaður Manchester City eftir að hann gekk í raðir félagsins frá Crystal Palace fyrr í vikunni.

Enska landsliðsmiðvörðurinn, sem er 25 ára gamall, kláraði félagaskipti sín á mánudag en City greiddi um 20 milljónir punda fyrir hann. Guéhi skrifaði undir fimm og hálfs árs samning sem er sagður vera að andvirði um 300 þúsund punda á viku, sem setur hann í hóp allra hæst launuðu leikmanna félagsins.

Manchester City var tilbúið að bjóða Guéhi þessi háu laun þar sem kaupverðið var tiltölulega lágt, enda samningur hans við Crystal Palace að renna út í lok tímabilsins. Aðeins Erling Haaland, sem er á um 525 þúsund punda vikulaunum, þénar meira hjá liðinu undir stjórn Pep Guardiola.

Laun Guéhi jafnast á við Bernardo Silva, á meðan Omar Marmoush er skammt á eftir með um 295 þúsund pund á viku. Þá eru leikmenn á borð við John Stones, Ruben Dias og Gianluigi Donnarumma sagðir vera á um 250 þúsund punda vikulaunum samkvæmt gögnum frá Spotrac.

Phil Foden, Rodri og Tijjani Reijnders eru einnig yfir 200 þúsund punda vikulaunum, en Josko Gvardiol er rétt undir því marki. Hinn nýi leikmaður City í janúar, Antoine Semenyo, er sagður vera á um 150 þúsund pundum á viku, á meðan varamarkverðirnir Stefan Ortega og James Trafford fá um 90 þúsund og 50 þúsund pund á viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs