fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

David Beckham virkaði bugaður þegar hann mætti í viðtal í morgun – Nokkrum klukkustundum eftir að sonur hans urðaði yfir þau

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 10:27

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Beckham sást opinberlega í fyrsta sinn síðan sonur hans, Brooklyn Beckham, birti harðorða yfirlýsingu um fjölskyldudeiluna sem hefur geisað innan Beckham-fjölskyldunnar.

Beckham var viðstaddur World Economic Forum í Davos í dag, þar sem hann tók þátt í viðtali og ljósmyndatöku.

Meira:
Stormurinn eykst í kringum Beckham fjölskylduna: Sendir frá langa yfirlýsingu og tekur foreldra sína af lífi

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn, sem er 50 ára, virtist þreytulegur á svip þegar hann mætti í viðtal á hlaðvarpinu Radio Davos, í þætti sem ber heitið Re-thinking með vísindahöfundinum Adam Grant.

Þema fundarins í Davos í ár er „andi samtals“, en viðtalið við Beckham á að fjalla um seiglu, mistök, eftirsjá og vonbrigði, sem margir telja óhjákvæmilega tengjast erfiðri stöðu hans í einkalífinu. Þátturinn á að birtast á miðvikudag.

Brooklyn, 26 ára, birti á mánudagskvöld sex blaðsíðna yfirlýsingu á Instagram þar sem hann sagði að hann hefði engan áhuga á að sættast við fjölskyldu sína og væri loks að standa með sjálfum sér. Hann hélt því fram að hann hefði lengi verið „stjórnað“ af fjölskyldu sem setti ímynd og opinbera kynningu ofar öllu öðru.

Brooklyn og eiginkona hans, Nicola Peltz, 31 árs, hafa haldið sig fjarri öllum helstu fjölskylduviðburðum undanfarna mánuði, þar á meðal 50 ára afmæli Davids og riddaratign hans. Brooklyn sakaði einnig móður sína, Victoriu Beckham, um að hafa hætt við að sauma brúðarkjól Nicolu á elleftu stundu og jafnframt „rænt“ fyrsta brúðardansinum, sem varð til þess að þau endurnýjuðu heit sín án fjölskyldunnar á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs