
Declan Rice lét gremju sína í ljós eftir að Arsenal missti af tækifærinu til að ná níu stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Arsenal heimsótti Nottingham Forest á laugardagskvöld eftir að Manchester City tapaði borgarslagnum gegn Manchester United fyrr um daginn. Skyttunum tókst ekki að nýta sér það til fulls, gerðu markalaust jafntefli við Forest en eru þó með sjö stiga forskot á toppnum.
Declan Rice hefur verið einn allra besti leikmaður Arsenal á leiktíðinni og var hann sjáanlega brjálaður eftir leik. „Ömurlegt, alltaf svo fokking ömurlegt,“ mátti lesa af vörum hans.
Ekki er vitað nákvæmlega hvort Rice vísaði þarna í frammistöðu Arsenal eða dómaranna, sem slepptu því að dæma víti á Forest þó Ola Aina hafi handleikið knöttinn augljóslega innan teigs. Enskir miðlar virðast lesa þannig í stöðuna að enski miðjumaðurinn hafi verið pirraður á eigin liði.
Arsenal mætir Inter í Meistaradeildinni á morgun, áður en Manchester United kemur í heimsókn á Emirates um helgina.
“F*cking sh*t, every f*cking time!”
— Gunners (@Gunnersc0m) January 17, 2026