
Nottingham Forest er að kanna möguleikann á að rifta lánssamningi Oleksandr Zinchenko. BBC greinir frá.
Bakvörðurinn gekk í raðir Forest frá Arsenal í sumar út leiktíðina þar sem hann var ekki í áætlunum Mikel Arteta á Emirates lengur.
Zinchenko hefur þó ekki tekist að festa sig í sessi hjá Forest og er félagið til í að losa hann í glugganum í þessum mánuði.
Það gæti þó orðið vandamál Arsenal-megin, en leikmannahópur liðsins er nú þegar þéttsetinn og því ekki hægt að skrá Úkraínumanninn.
Það þyrfti því líklega að finna annað lið til að senda Zinchenko til, snúi hann aftur til Arsenal í þessum mánuði.