
Fyrrum varnarmaður Ajax og Everton, John Heitinga, hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari hjá Tottenham.
Heitinga, sem hefur stýrt Ajax tvisvar um stutt skeið, árin 2023 og 2025, hefur einnig verið í teymi Liverpool og West Ham eftir að hann hætti sem leikmaður 2016. Hjálpaði hann Liverpool að verða meistari í vor.
„John er frábær viðbót við þjálfarateymið. Persónuleiki hans og reynsla munu hjálpa mikið bæði innan og utan vallar,“ sagði Thomas Frank, stjóri Tottenham.
Heitinga lék einnig með Fulham, Hertha Berlin og Atletico Madrid og lék 87 landsleiki fyrir Holland.
We are delighted to welcome John Heitinga to the Club as First Team Assistant Coach, joining Thomas Frank’s coaching staff.
🔗 https://t.co/tVI1ZB1aPV pic.twitter.com/tjfPYRXjzQ
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 15, 2026