

Enskir miðlar telja að Kobbie Mainoo muni fá stórt hlutverk hjá Manchester United við komu Michael Carrick, hann er mættur til starfa á æfingasvæði félagsins.
Talið er að Carrick muni spila 4-2-3-1 kerfið en Ruben Amorim var rekinn úr starfi, kerfi hans með þriggja manna línu var ekki vinsælt á Old Trafford.
Carrick hefur stýrt Middlesbrough á ferli sínum en hann tekur nú við United út tímabilið.
Carrick, sem er 44 ára gamall fyrrverandi miðjumaður United, hafði betur gegn Ole Gunnar Solskjær í baráttunni um starfið.
Hann mun nú hefja skipulagningu ásamt sínu þjálfarateymi í von um að snúa gengi liðsins við út tímabilið.
Fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari Englands, Steve Holland, mun taka við hlutverki aðstoðarþjálfara og verða númer tvö hjá Carrick á Old Trafford. Þá munu Jonathan Woodgate, Jonny Evans og Travis Binnion einnig vera hluti af þjálfarateyminu.
Mögulegt byrjunarlið Carrick:
Senne Lammens
Noussair Mazraoui
Matthijs de Ligt
Lisandro Martinez
Luke Shaw
Casemiro
Kobbie Mainoo
Bryan Mbeumo
Bruno Fernandes
Matheus Cunha
Benjamin Sesko