
Óvenjulegt atvik kom í veg fyrir að Estelle Cascarino gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir kvennalið West Ham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Franskal landsliðskonan, sem er 28 ára, gekk til liðs við West Ham á láni frá Juventus aðeins fjórum dögum fyrir leik liðsins gegn Chelsea. Hún átti að koma inn á í hálfleik, en þegar Rita Guarino, stjóri West Ham, ætlaði að skipta henni inn á gripu dómarar inn í vegna eyrnalokks sem Cascarino bar.
Þrátt fyrir að Cascarino væri með límband yfir eyranu var henni meinað að koma inn á völlinn. Hún útskýrði að ekki væri hægt að fjarlægja eyrnalokkinn nema með læknisaðstoð, en samkvæmt reglum enska knattspyrnusambandsins er öll notkun skartgripa bönnuð í leikjum, þó að límband sé notað.
Guarino var ósátt eftir leik. „Hún getur ekki tekið eyrnalokkinn úr, þetta er eins og húðflúr. Hún hefur spilað í Meistaradeildinni með límband og því skil ég þetta ekki,“ sagði hún.
Myndband af þessu er hér að neðan.
Restart is delayed due to the referee refusing Delphine Cascarino to come on the pitch with an earring! pic.twitter.com/OD6mQvQr30
— Chelsea Women Daily (@CFCWdaily) January 11, 2026