fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Komst að breytingum á reglum í gær – Er ósáttur með þær fyrir kvöldið mikilvæga

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eddie Howe, stjóri Newcastle, hefur gagnrýnt reglubreytingu sem gerir Antoine Semenyo kleift að spila fyrir Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins.

Semenyo, sem kostaði City um 64 milljónir punda, hafði þegar komið við sögu fyrir AFC Bournemouth í keppninni á þessu tímabili og hefði samkvæmt eldri reglum verið bikartengdur þeim og ekki mátt spila.

Reglur EFL leyfa nú hins vegar leikmönnum að spila fyrir allt að tvö félög í sömu keppni á einu tímabili, sem þýðir að Semenyo má spila gegn Newcastle í fyrri leik undanúrslitanna á St James’ Park í kvöld.

Howe sagði reglubreytinguna koma sér á óvart og viðurkenndi að hann væri ekki hlynntur henni. „Þetta er líklega ein reglubreyting sem ég myndi ekki styðja akkúrat núna,“ sagði hann.

Hann bætti þó við að Semenyo hefði átt frábært tímabil, hann væri mikill aðdáandi hans og hrósaði Manchester City fyrir að hafa tryggt sér mjög góðan leikmann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs