

Stuðningsmenn Manchester United telja sig þegar vita hver næsti varanlegi knattspyrnustjóri félagsins verður, eftir að þjálfarateymi Michael Carrick var kynnt.
Carrick, sem er 44 ára gamall, hefur náð samkomulagi við Manchester United um að stýra liðinu til bráðabirgða út tímabilið, á meðan stjórnendur leita að varanlegum arftaka fyrir Ruben Amorim sem var rekinn á dögunum.
Fyrrverandi miðjumaður United mun því vera á hliðarlínunni út tímabilið og hefur þegar sett saman sitt teymi.
Meðal þeirra sem hann hefur fengið til liðs við sig er fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari Englands, Steve Holland, sem samkvæmt BBC mun gegna hlutverki aðstoðarþjálfara og verða númer tvö hjá Carrick.
Þessi ráðning hefur þegar kveikt vangaveltur meðal stuðningsmanna United um að næsti varanlegi knattspyrnustjóri félagsins gæti orðið Gareth Southgate. Holland starfaði með Southgate allan hans tíma með enska landsliðinu, frá 2016 til 2024, og telja margir að tengsl þeirra geti verið vísbending um framtíðarplön félagsins.