fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ræddu stórt vandamál á Íslandi og hvað sé til ráða – „Það eru allir að reyna að vera sniðugur“

433
Mánudaginn 12. janúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin ár hefur karlalandsliðið í fótbolta verið í vandræðum með stöðu miðvarðar, þjálfarar íslenska landsliðsins hafa haft fáa kosti að velja úr og ástandið virðist ekki vera að batna.

Rætt var um málið í Þungavigtinni í dag en nefndar voru nokkrar ástæður fyrir því að íslenskur fótbolti væri hættur að framleiða miðverði í hæsta gæðaflokki.

Í mörg ár vorum við með marga öfluga varnarmenn en í dag framleiðir íslenskur fótbolti frekar öfluga sóknarmenn og landsliðið finnur fyrir því.

„Ástæðan fyrir því að ungir varnarmenn á Íslandi verða ekkert mikið betri, við erum að tala um bestu liðin. Í fjölmennustu og bestu liðunum, varnarmenn í þessum liðum fá aldrei neina áskorun. Þeir fá aldrei að verjast, eru í sókn 90 prósent af leikjum og reynir aldrei á varnarleikinn,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni.

Viktor Unnar Illugason sem hefur starfað í yngri flokka þjálfun segir mistök einnig gerð þar. „Mér finnst líka horft of mikið í, það eru allir að reyna að vera sniðugur. Þú ert með stóran hafsent sem er kannski ekki frábær í fótbolta, þá taka menn einhvern sem er betri í fótbolta og tala um að hann eigi eftir að stækka. Í stað þess að taka þennan stóra og gera bara buff úr honum.“

Ríkharð Óskar Guðnason tók þá til máls og tók dæmi. „Ég ætla að ræða einn sem er tengdur mér fjölskylduböndum, hann er 17 ára. Hann hefur verið kantmaður alla yngri flokka, núna er hann að stækka og orðinn 1.90. Hann var komin á bekkinn og í B-liðið, hann ákvað að gerast miðvörður og á 18 mánuðum er hann komin í meistaraflokk.“

Talað var um að vöntun væri á öflugum miðvörðum. „Það er ekkert brjálæðislega mikið að koma,“ sagði Viktor Unnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða