

Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson, sem stýra hlaðvarpinu og vefsíðunni Handkastið, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is og hituðu upp fyrir EM í handbolta í þessum mánuði.
Miklar vonir hafa verið bundnar við íslenska liðið, sem hefur nú spilað saman í þó nokkur ár. Margir vilja sjá Strákana okkar fara loks inn í undanúrslit. Arnar og Styrmir eru bjartsýnir fyrir mótinu en telja þó að eitt og annað megi bæta.
„Þetta er sama lið sem hefur lent á sama veggnum ár eftir ár. Þetta er pottþétt íþyngjandi. Þetta er ekki eins og í fótboltanum þar sem mótin eru á fjögurra ára fresti og það eru bara fjórir farnir út og aðrir inn og kannski komin ný vonarstjarna liðsins eða eitthvað. Þetta eru sömu leikmenn sem er alltaf verið að treysta á aftur og aftur,“ sagði Arnar.
„Þetta er nánast eins og félagslið, sami hópurinn aftur og aftur. Segjum að það sé Króatía á morgun, það er hádegismatur, hver er að fara að krydda þetta og létta andrúmsloftið. Ég hef áhyggjur af hausnum á mönnum og hver ætlar að axla ábyrgð sóknarlega þegar illa gengur. Þegar illa hefur gengið á síðustu tveimur mótum gegn Króatíu og Ungverjum, þá hefur enginn tekið liðið á herðar sér og hjálpað þeim í gegnum þann erfiða hjalla. Heldur hafa allir bara runnið niður brekkuna og við endað heima með buxurnar á hælunum.“
Styrmir vill sjá svipaðan anda og hjá kvennalandsliðinu í handbolta á HM fyrir áramót.
„Andinn og leikgleðin sem var í þeim í nóvember og desember smitaðist heim í stofu. Liðið er svolítið við stofuhita. Þetta er allt svolítið flatt. Við höfum verið að kalla eftir því að menn steyti hnefann aðeins upp í stúku og sýni að þetta sé gaman. Við viljum sjá að þetta skipti þá enn meira máli en að spila með Magdeburg eða Melsungen.“
Þátturinn í heild er í spilaranum.