
Odsonne Edouard, fyrrum framherji Crystal Palace og Celtic, hafnaði því að spila með Haítí á HM í sumar.
Edouard er gjaldgengur með liði Haítí í gegnum foreldra sína og fékk boð um að fara á mótið, en ákvað að hafna því þar sem hann telur sig ekki hafa unnið sér inn sætið.
„Leikmennirnir börðust fyrir því að koma liðinu á HM og ég ætlaði ekki að mæta á síðustu stundu og taka sæti af einhverjum öðrum,“ sagði Edouard um málið.
Framherjinn, sem er 28 ára gamall, hefur átti gott tímabil með Lens í Frakklandi og skoraði 12 mörk í deildinni.
Haítí leikur í sumar á HM í fyrsta sinn í 52 ár.