
Lionel Messi olli áhyggjum á meðal Argentínumanna þegar hann fór meiddur af velli í 6-4 sigri Inter Miami á Philadelphia Union í MLS-deildinni í nótt.
Messi, sem er 38 ára gamall, bað um skiptingu á 73. mínútu og hélt beint inn í klefa.
Guillermo Hoyos, þjálfari Inter Miami, sagði eftir leik að enn væri óljóst hversu alvarleg meiðslin væru.
„Hann var þreyttur. Völlurinn var þungur og við vildum ekki taka neina áhættu,“ sagði Hoyos.
Messi hafði fyrir leikinn spilað alla síðustu 13 deildarleiki liðsins og er sjaldséð að hann fari af velli.
Argentína mætir Hondúras í vináttulandsleik 6. júní og síðan Íslandi 9. júní áður en HM hefst. Messi verður auðvitað fyrirliði Argentínu, sem freistar þess að verja heimsmeistaratitilinn frá því á mótinu árið 2022.
Messi hefur átt frábært tímabil til þessa vestan hafs, er með 13 mörk og 7 stoðsendingar í 16 leikjum.