fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Óttast að ekkert geti bjargað þeim úr þessu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 18. maí 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nuno Espírito Santo, knattspyrnustjóri West Ham, viðurkenndi eftir 3-1 tap gegn Newcastle að staða liðsins í fallbaráttunni væri orðin afar erfið.

West Ham lenti snemma undir á St James’ Park og Nuno breytti leikkerfi sínu eftir aðeins 25 mínútur þegar liðið var þegar komið tveimur mörkum undir. Tapið þýðir að Tottenham þarf nú aðeins eitt stig til viðbótar til að tryggja sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni og ýta West Ham nær falli.

„Í dag misstum við af stóru tækifæri og við verðum að horfast í augu við að það verður gríðarlega erfitt að halda okkur uppi núna,“
sagði Nuno eftir leikinn.

Hann sagði einnig að West Ham hefði ekki lengur stjórn á eigin örlögum og þyrfti nú að treysta á úrslit annarra liða.

Nuno var sérstaklega ósáttur við einstaklingsmistök leikmanna sinna sem leiddu til marka Newcastle.

„Þetta er leikur mistaka og við verðum að axla ábyrgð. Það særir að gefa mörk svona auðveldlega. Andstæðingar okkar eiga að þurfa að hafa mikið meira fyrir mörkum sínum,“
sagði Portúgalinn.

West Ham er nú í mjög erfiðri stöðu í botnbaráttunni og gæti fall félagsins jafnvel ráðist strax á þriðjudag ef Tottenham nær í stig gegn Chelsea.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Haaland að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaheiminum

Haaland að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaheiminum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Reynir að róa stuðningsmenn fyrir úrslitaleikinn

Reynir að róa stuðningsmenn fyrir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vilja bjóða honum betri samning til að fæla frá Chelsea og Liverpool

Vilja bjóða honum betri samning til að fæla frá Chelsea og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Magnús Haukur tætir Jóhannes og Davíð Þór í sig og lætur þungar fullyrðingar falla – „Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing er til skammar“

Magnús Haukur tætir Jóhannes og Davíð Þór í sig og lætur þungar fullyrðingar falla – „Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing er til skammar“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband
433Sport
Í gær

Beraði óvart brjóstin í beinni útsendingu – „Ég tók ekki eftir þessu!“

Beraði óvart brjóstin í beinni útsendingu – „Ég tók ekki eftir þessu!“
433Sport
Í gær

Arsenal, Liverpool og Manchester United á eftir sama leikmanninum

Arsenal, Liverpool og Manchester United á eftir sama leikmanninum