
Stuðningsmenn Celtic ruddust inn á völlinn eftir að liðið tryggði sér skoska meistaratitilinn með 3-1 sigri á Hearts um helgina.
Mikill fögnuður braust út þegar Callum Osmand skoraði þriðja mark Celtic í uppbótartíma, en í kjölfarið skapaðist mikil ringulreið á vellinum þegar stuðningsmenn streymdu inn á.
Leikmönnum Hearts var fylgt af velli af öryggisvörðum og félagið segir bæði leikmenn og starfsfólk hafa orðið fyrir ofbeldi og að fúkyrði hafi verið látin falla í þeirra garð.
Christian Borchgrevink, leikmaður Hearts, segir suma liðsfélaga sína hafa komið blóðuga inn í klefa eftir atvikið.
„Þetta var algjört kaos. Við hlupum inn á völlinn til að verja liðsfélaga okkar. Allir komust inn ómeiddir, þó það hafi sést blóð hér og þar,“ sagði Borchgrevink.
Hearts var á toppi deildarinnar lengst af á tímabilinu og hefði dugað jafntefli til að verða fyrsta liðið fyrir utan Celtic og Rangers til að verða meistari í 41 ár.
Tómas Bent Magnússon er á mála hjá Hearts en hann hefur verið meiddur síðustu vikur.