fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil óvissa ríkir í hollenskum fótbolta eftir að hollenska knattspyrnusambsandið varaði við því að tímabilið í Eredivisie gæti farið í uppnám vegna lagadeilu sem gæti haft gríðarleg áhrif á deildina.

NAC Breda hefur höfðað mál vegna 6-0 taps liðsins gegn Go Ahead Eagles í mars. Deilan snýst um að varnarmaðurinn Dean James hafi að sögn ekki verið löglegur leikmaður í leiknum.

Ástæðan er sú að James, sem er fæddur í Hollandi, hefur byrjað að spila fyrir indónesíska landsliðið og samkvæmt hollenskum lögum getur einstaklingur misst hollenskan ríkisborgararétt við að taka upp annað ríkisfang. Þá hefði hann þurft atvinnuleyfi til að spila í Hollandi.

NAC vill að leikurinn verði dæmdur ógildur og endurtekinn, en áfrýjunarnefnd knattspyrnusambandsins ákvað áður að niðurstaðan stæði.

Takist NAC að vinna málið gæti það haft fordæmisgildi fyrir fjölmarga aðra leiki á tímabilinu, með þeim afleiðingum að allt að 133 leikir í efstu deild gætu þurft að fara fram á ný.

Málið hefur vakið mikla athygli í hollenskum fótbolta og gæti haft sögulegar afleiðingar fyrir deildarkeppnina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum