fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænski knattspyrnustjórinn Xabi Alonso er sagður opinn fyrir því að taka við Chelsea, en með einu skilyrði. Simon Phillips, blaðamaður sem fjallar mikið um málefni Chelsea, heldur þessu fram.

Chelsea leitar nú að nýjum knattspyrnustjóra í stað Liam Rosenior, sem var rekinn á dögunum eftir nokkra mánuði í starfi og fremur afleitt gengi. Hefur félagið rætt við nokkra kandídata.

Alonso gerði frábæra hluti með Bayer Leverkusen, en gekk síður vel í starfi hjá Real Madrid og var hann látinn fara þaðan. Hann er því á lausu.

Mikill óstöðugleiki hefur verið hjá Chelsea undanfarin ár í kjölfar þess að nýir eigendur komu inn í félagið.

Knattspyrnustjórarnir á þessum tíma hafa þá fengið takmörkuð völd en Alonso vill sjá það breytast, eigi hann að taka við, samkvæmt Phillips.

Fleiri hafa verið orðaðir við starfið, til að mynda Andoni Iraola, sem mun yfirgefa Bournemouth í sumar eftir að hafa skilað þar frábæru starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum